Hvar
  • 101
Lýsing

Á þessum viðburði býð ég þér, kæra sála, upp á stutta kynningarmeðferð byggð á orkumeðferð og miðlun sem snýr að því að koma þér nær þínu sanna sjálfi. Við leyfum því að koma til okkar sem vill vera heyrt og séð hverju sinni frá efnis og orkulíkömum okkar, okkar hærra sjálfi, leiðbeinendum, forferðrum eða öðrum. Meðferðin gæti því verið tengd efnislíkamanum, því að losa um eða hreyfa við orku innra með honum eða miðla skilaboðum sem vilja komast til þín. Meðferðin gæti farið í að hreinsa úr orkulíkama orku, tilfinningar, hugsanir, skoðanir og annað frá öðrum eða koma auga á takmarkandi hugsanir og trú sem þú berð í þinn eigin garð. Einnig gætu verið skilaboð frá þínu hærra sjálfi, leiðbeinendum, forfeðrum eða öðrum sem vilja komast til þín eða jafnvel gömul trú, sár eða áföll frá forfeðrum eða öðrum lífum sem er tilbúið að losna út.

Kynningarmeðferð er um 15 mínútur og kostar 1111kr eða 1000kr ef greitt er með pening

Ef þú hefur ekki efni á meðferðinni að þessu sinni en finnur köllun til að koma er hún þér að kostnaðar lausu

Tímasetning

Annað áhugavert