
Meðferðir
Tíðnimeðferðir - Líf Ómur
Kynningarmeðferðir Líf Óms Á Heimsljósi býð ég upp á þrjár mismunandi tíðnimeðferðir sem gefa þér tækifæri til að kynnast tíðnimeðferð og njóta stundar þar sem áhersla er lögð á slökun, jafnvægi og vellíðan. Andleg vellíðan og streitulosun
Mild tíðnimeðferð fyrir þá sem upplifa streitu, innri óróleika, tilfinningalegt álag eða eiga erfitt með að slaka á. Áhersla er lögð á að styðja við taugakerfið, losa um spennu og skapa rými fyrir innri ró og jafnvægi.
45 mínútur – 5.000 kr. Orkuhleðsla
Tíðnimeðferð fyrir þá sem upplifa þreytu, orkuleysi eða þörf fyrir endurnæringu. Áhersla er lögð á að styðja við orkubúskap líkamans, efla lífskraftinn og stuðla að aukinni vellíðan.
45 mínútur – 5.000 kr. Orkustöðvajöfnun
Tíðnimeðferð þar sem unnið er með orkustöðvar líkamans með það að markmiði að styðja við orkuflæði og aukið jafnvægi. Meðferðin hentar vel þeim sem vilja stutta, róandi og nærandi upplifun.
25 mínútur – 3.000 kr. Í upphafi hverrar meðferðar fer fram stutt samtal um líðan þína og þá áherslu sem þú velur. Um er að ræða kynningu á tíðnimeðferð en ekki fulla tíðnigreiningu eða ítarlegt heilsufarsmat.

