Heimsljós
Til baka
Þurý Gísla í Líf Óm

Þurý Gísla í Líf Óm

Þurý Gísla – Líf Ómur Ég heiti Þurý Gísla og er heildrænn meðferðaraðili og eigandi Líf Óms. Ég býð upp á tíðnigreiningu og einstaklingsmiðaðar tíðnimeðferðir þar sem ég horfi á heilsufarssöguna, líðanina og líkamann sem eina heild. Einnig býð ég upp á Englareikiheilun með áherslu á slökun, kyrrð og nærandi nærveru. Auk þess fer ég í heimahús og á vinnustaði þar sem ég geri tíðnimælingar á rafmengun og umhverfisþáttum eins og jarðgeislum, neðanjarðarsprungum og neðanjarðarvatni. Í framhaldinu veiti ég ráðleggingar um mögulegar úrbætur og hvernig skapa megi heilbrigðara og styðjandi umhverfi. Til mín leitar fólk meðal annars vegna þreytu og orkuleysis, meltingaróþæginda, svefnvanda, streituálags og annarra langvinnra eða fjölþættra einkenna. Í starfi mínu legg ég áherslu á hlýja og persónulega þjónustu, virka hlustun og að hjálpa hverjum einstaklingi að skilja betur skilaboð líkamans. Markmiðið er að skoða hvar líkaminn kallar helst eftir stuðningi og vinna með honum í átt að auknu jafnvægi og vellíðan. Einkenni eru skilaboð – saman finnum við orsökina og styðjum líkamann til jafnvægis.

Viðburðir

Heildrænar tíðnimeðferðir - Þurý hjá Líf Ómi
Kynning (borð á gangi)

Heildrænar tíðnimeðferðir - Þurý hjá Líf Ómi

Einkenni eru skilaboð – Líf Ómur Á kynningarborði Líf Óms getur þú hitt Þurý Gísla og fengið upplýsingar um tíðnigreiningu, einstaklingsmiðaðar tíðnimeðferðir, mælingu á umhverfisþáttum sem geta haft áhrif á heilsu og vellíðan. Þurý verður til viðtals um heildræna nálgun sína og hvernig hún vinnur með fólk sem glímir meðal annars við þreytu, orkuleysi, meltingaróþægindi, svefnvanda, streitu og önnur fjölþætt einkenni. Einnig verður hægt að fræðast um mælingar á rafmengun og jarðgeislum á heimili og vinnustöðum, ásamt því að skoða jarðtengingarvörur frá Groundology. Komdu við, kynntu þér starfsemi Líf Óms og spjallaðu við Þurý.

19.09.2026 11:00 - 17:00
20.09.2026 11:00 - 17:00
Tíðnimeðferðir - Líf Ómur
Meðferðir

Tíðnimeðferðir - Líf Ómur

Kynningarmeðferðir Líf Óms Á Heimsljósi býð ég upp á þrjár mismunandi tíðnimeðferðir sem gefa þér tækifæri til að kynnast tíðnimeðferð og njóta stundar þar sem áhersla er lögð á slökun, jafnvægi og vellíðan. Andleg vellíðan og streitulosun Mild tíðnimeðferð fyrir þá sem upplifa streitu, innri óróleika, tilfinningalegt álag eða eiga erfitt með að slaka á. Áhersla er lögð á að styðja við taugakerfið, losa um spennu og skapa rými fyrir innri ró og jafnvægi. 45 mínútur – 5.000 kr. Orkuhleðsla Tíðnimeðferð fyrir þá sem upplifa þreytu, orkuleysi eða þörf fyrir endurnæringu. Áhersla er lögð á að styðja við orkubúskap líkamans, efla lífskraftinn og stuðla að aukinni vellíðan. 45 mínútur – 5.000 kr. Orkustöðvajöfnun Tíðnimeðferð þar sem unnið er með orkustöðvar líkamans með það að markmiði að styðja við orkuflæði og aukið jafnvægi. Meðferðin hentar vel þeim sem vilja stutta, róandi og nærandi upplifun. 25 mínútur – 3.000 kr. Í upphafi hverrar meðferðar fer fram stutt samtal um líðan þína og þá áherslu sem þú velur. Um er að ræða kynningu á tíðnimeðferð en ekki fulla tíðnigreiningu eða ítarlegt heilsufarsmat.