Heimsljós

Heimsljósmessan

Heimsljósmessan er haldin ár hvert 3. helgina í september og hefur verið hýst í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ.

Mannræktarfélag Íslands heldur utan um alla framkvæmd hátíðarinnar. Öllum er heimilt að taka þátt.

Heimsljósmessan er fræðandi samvera um heilsu bæði andleg sem líkamleg. Hún byrjar á föstudagskvöldi með heilunarguðþjónustu og svo er full dagskrá laugardag og sunnudag. Aðgangseyrir er einungis greiddur við innganginn og gildir miðinn fyrir báða dagana. Verði hefur verið stillt í hóf og er nú 1500 kr fyrir báða daga.

Mannræktarfélag Íslands er framkvæmdaraðili messunnar. Öllum er velkomið að taka þátt. Þeir sem áhuga hafa á að vera með kynningu, meðferð eða annað geta haft samband beint við Vigdísi á fb eða [email protected].

Á Heimsljósmessunni er að finna:

Hollustuveitingastað með hádegismat, kaffi og kökum yfir daginn.

Fjölmarga fyrirlestra.

Meðferðir: stuttir prufutímar í allskyns meðferðum, breytilegt ár frá ári.

Hugleiðsluherbergi með mismunandi hugleiðslu alla helgina.

Markaðstorg: sala og kynningar á listum, námskeiðum, mat og ýmsu sem tengist mannrækt og heilsu.

Vinnustofa þar sem fólk gerir alls konar í hóp, t.d. fræðsla eða kynning.

Mannræktarfélag Íslands heldur utan um alla framkvæmd Heimsljósmessunnar.

Ábyrgðaraðilar félagsins eru: Vigdís Steinþórsdóttir og Auðunn Karlsson.

Aðstoðaraðilar: Björk Garðarsdóttir og Árnína B. Einarsdóttir

Tækni/vefumsjón: Hjalti Freyr Kristinsson – Vefadstod.com