
Meðferðir
Sálarrækt/Soul Cultivation
Unnið er með Christos orkuna til að hreinsa og vernda líkama, huga og sál. Þetta er Sálarrækt í kærleiksorku sem bæði hreinsar og vekur sál okkar til lífsins og tengir okkur við ljósið innra með okkur. (The kingdom of heaven is within you!). Í gegnum lífið þá er ýmislegt sem við göngum í gegnum og á þeirri vegferð söfnum við allskonar drasli sem við gleymum að flokka, henda og hreinsa ef það á við. Við búum okkur til ýmsar afsakanir til að sleppa við tiltektina og allskonar hugsanir leita á okkur tengt þessu. Christos orkan er öflug tiltekt sem ég mæli með af þú kannast við svona drasl í rýminu hjá þér. Mundu að þú ert ekki hugsanir þínar, stundum blekkja þær okkur til að sleppa tiltektinni.

