
Pétur Rúðrik - Sólmáni
Heilari, Markþjálfi og Andlegur leiðbeinandi
Ég hef unnið með fólk í mörg ár í gegnum samtöl, nærveru, orkuvinnu og hlustun.
Í þessari vinnu nýti ég bæði lífsreynslu mína og þá vegferð sem ég hef sjálfur gengið í gegnum – ásamt þeirri reynslu sem ég hef öðlast með fólki sem hefur átt samleið með mér.
Stundum þurfum við einfaldlega öruggt rými, mjúka leiðsögn og einhvern sem sér okkur — og hjálpar okkur að vakna til lífsins og finna leiðina heim aftur.
Ég býð þér í Sálarrækt sem leiðir þig þangað sem þér er ætlað að fara.

