
Neteru Heilun - Alkemía ljóssins
Neter (NTR) er Uppsprettan, og Neteru eru öflin eða birtingarmynd hennar. Forn-Egyptar (Kemet) persónugerðu þessi öfl; sem dæmi stendur Ísis (Aset) fyrir frumkraftinn á bak við móðurina, vernd og töfra, Toth (Tehuti) fyrir þekkingu og visku, og Ma’at fyrir jafnvægi og réttlæti. Neteru eru því mismunandi tíðni, orka og frummynstur af því hvernig heimurinn og lögmál náttúrunnar virka. En kjarni þessara krafta snýst um að koma á jafnvægi. Á þann hátt getur lífið dafnað, þróast og risið upp í æðri tilvist. Heilunin felst í því að hreinsa rásir, aðstoða við að melta þétta orku eða innri óreiðu. Þegar við veitum henni athygli og skilning, getur sú óreiða umbreyst í skýrleika – skýrleika sem einstaklingur þarf til að auka heilbrigt flæði lífsorkunnar og eigin sköpunarkraft. Í meðferðinni opna ég fyrir töfra og visku Neteru, nota trommu/tóna og andardráttinn til að hreyfa við orkunni og komast dýpra. Allt fer fram í öruggu rými. Alkemían hér er að breyta óreiðu í skýrleika – beina myrkri yfir í ljós.

