Heimsljós
Til baka
Sandra Pushpa // Nektar Jarðar

Sandra Pushpa // Nektar Jarðar

Ég er alkemisti og heilari, ég vinn með orku, plöntur og tóna. Ég er fædd á Sri Lanka og alin upp á Íslandi frá blautu barnsbeini. Alla tíð hef ég leitast að því að sameina þessa tvo stóru þætti í mér. Lífið hefur hingað til snúist að því að koma jafnvægi á milli þessara póla, en þeir eru rótin af því hver ég er í dag. Ég á mjög auðvelt með að fara inn í hugleiðsluástand. Rýmið sem ég hef ræktað þar hefur hjálpað mér að takast á við þær flóknu mannlegu áskoranir sem lífið hefur fært mér, ásamt öðrum tólum sem ég hef þróað með mér í gegnum andlega iðkun og lífsreynslu. Næmni og skyggni hafa fylgt mér síðan ég man eftir mér. Ég leita í náttúruna hvert sem ég fer, og það má segja að íslensk náttúra hafi tekið mig í fangið og kennt mér á sýna töfra, vætti og einstöku orku. DNA-ið mitt og fyrstu mánuðirnir á Sri Lanka eru minn innri fjársjóður, þar get ég tappað inná allskyns galdra og skynjanir, tengingar og frumkrafta.

Viðburðir