Heimsljós
KRAFTUR HJARTANS TIL HEILUNAR INNRA OG YTRA
Hugleiðslur

KRAFTUR HJARTANS TIL HEILUNAR INNRA OG YTRA

Ég elska kraft og mátt hjartans, hef haldið námskeið um þakklætis-iðkun og styrk hjartans í mörg ár, bjó til netnámskeið og hugleiðslur út frá því og nýt þess enn að dýpka vitund mína og þekkingu um hinn ótrúlega kraft og mátt hjartans til að heila líkama og sál sem og til að umbreyta orku heimsins til hins betra. Í þessari hugleiðslu þá förum við í víðfeðmar dýptir hjarta orkunnar og virkjum mátt hennar til að heila líkama og sál, við tengjum okkur einnig við ljósbera heimsins allstaðar til að hækka orkutíðni okkar og móður jarðar. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir og frítt inn. Byrjum stundvíslega á settum tíma.