Heimsljós
Til baka
Jóhanna Jónas - Ljósgyðja ehf.

Jóhanna Jónas - Ljósgyðja ehf.

Jóhanna Jónas er yfirkennari á 4 ári í Barböru Brennan School of Healing í Evrópu útibúi skólans í Bretlandi. Hún starfar á Íslandi sem Brennan orkuheilari og með heildræna samtalsmeðferð. Hún er einnig með netnámskeið og hugleiðslusafn á vefsíðunni www.johannajonasar.is og heldur jafnframt fyrirlestra og námskeið þegar færi gefst hér á landi. Jóhanna skrifaði bókina Frá Hollywood til heilunar ásamt Guðnýju Þórunni Magnúsdóttur sem kom út árið 2024 og er sjálfstyrkingarbók með ævisögulegu ívafi. Hún starfaði áður sem leikkona í USA og á Íslandi um árabil, ásamt öðru, og hefur stundað sjálfsrækt og hugleiðslu í tugi ára og nýtur þess að miðla af sinni reynslu og þekkingu.

Viðburðir