Heimsljós
Til baka
Við erum ekki ein og höfum líklega aldrei verið það
Fyrirlestrar

Við erum ekki ein og höfum líklega aldrei verið það

20.09.2026 11:00

Í tímans rás hefur geimverutilgátan í sínum ótal myndum byggst á hug myndum um heimsóknir gesta utan okkar sólkerfis en nú er umræðan að breytast. Trúarleg heimsmynd mannsins er skoruð á hólm. Hulan milli þess andlega og efnislega þynnist hratt og efnisveruleikinn eins og við höfum upplifað hann verður annarlegri í augum okkar. Samhliða UFO-uppljóstrunum vestanhafs og víðar um heim erum við farin að spyrja okkur spurninga sem snerta uppruna okkar og tilgang. Fólk sem hefur áður verið meira og minna rofið frá því óáþreifanlega er nú í auknum mæli að upplifa ríka þörf til innri og ytri breytinga. Þingmenn vestanhafs umorða gildishlaðin hugtök eins og „geimverur“ og fjalla þess í stað um þessar verur sem „fjölvídda“. Gunnar Dan fjallar hér með frumlegum og grípandi hætti um fjölvíddarverur, fljúgandi furðuhluti og fyrirbæri, tengsl efnis við skammtaheiminn og upplausn hugmyndafræðilegra ramma.

Umsjónaraðili