
Starcodes Academy
Þú hefur kraftinn til að skapa það líf sem þú vilt lifa EN þú þarft að taka stjórnina í þínar hendur. Innan Starcodes Academy sköpum við öruggt rými fyrir þig til að taka stjórnina, vaxa og þroskast í átt að þeirri manneskju sem þú raunverulega ert. Hvort sem þú ert að veita meðferðir eða að einblína á þína eigin andlegu vegferð, þá erum við hér til staðar fyrir þig. Okkar sýn er sú að við getum engum öðrum hjálpað nema að hjálpa okkur fyrst og setja okkur sjálf í fyrsta sæti í okkar lífi. Þannig eflum við okkur sem ljósbera á Jörðinni, því við verðum aldrei betri manneskjur og/eða meðferðaraðilar en vinnan sem við setjum í okkur sjálf - enda mikilvægt að vaxa stöðugt, annars er okkar hlutverki hér lokið. Við höfum mikla ástríðu fyrir því að styðja heildræna meðferðaraðila í að verða sterk og sýnileg leiðarljós. Við höfum sjálfar reynt hversu mikilvægt er að hafa leiðsögn og stuðning í okkar vinnu og viljum deila áfram þeirri þekkingu við höfum aflað okkur síðustu ár með því að vera sjálfar leiddar af hópi öflugra mentora. Allt okkar starf miðar að því að styðja þig á þeirri vegferð að finna leiðina sem hjartað þitt þráir að ganga, en það gerum við í gegnum ýmis konar námskeið, vinnustofur og styðjandi samfélög. Starcodes Academy hefur verið starfandi síðan 2021 og var stofnaður af okkur, Ölmu Hrönn Hrannardóttur og Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttur. Námskeið og samfélög skólans eru flest byggð á okkar eigin miðlunum á visku og ljóskóðum frá ýmsum ljósverum og stjörnukerfum og eru því einstök í sinni röð í heiminum. Við hlökkum til að sjá þig á Heimsljósi og til að kanna á hvaða hátt við getum sem best stutt við þig.

