
Kynning (borð á gangi)
Sjaman systur
Sigurbjörg Dögg málar heilunarmyndir í andlegu flæði í djúpri tengingu við leiðbeinendur, máttardýr, áttirnar og öfl elementanna. Hver mynd er einstök og ber með sér heilandi orku, visku og nærveru sem styður innri kyrrð, tengingu og umbreytingu. Jóhanna Vilhelmína býr til heilandi skartgripi með drekaorku – handgerðir úr náttúrusteinum og skapaðir í tengingu við kraft, visku og vernd drekanna. Hver gripur er einstakur og hlaðinn ásetningi um að efla innri styrk, umbreytingu og djúpa tengingu við eigandann. Ingibjörg Björt Sól gerir náttúrulegar heilunartrommur – skapaðar í djúpri tengingu við anda efniviðarins, leiðbeinendur og máttardýr. Hver tromma er handgerð úr íslensku skinni sem hún verkar sjálf. Tromman ber með sér hlýjan, heilandi hljóm sem styður jafnvægi, innri kyrrð og tengingu við kraft náttúrunnar.

