Heimsljós
Til baka
Orkusteinar - kristalar, leiðsagnarspil o.fl.
Kynning (borð á gangi)

Orkusteinar - kristalar, leiðsagnarspil o.fl.

19.09.2026 11:00 - 17:00
20.09.2026 11:00 - 17:00

Verslunin Orkusteinar er í eigu Starcodes Academy en við byggjum á tveggja áratuga reynslu af að vinna með bæði kristala og leiðsagnarspil. Við byggjum því á góðum grunni þegar kemur að því að aðstoða þig við að finna vörur sem henta þér eða þeim sem þér þykir vænt um, en hjá Orkusteinum bjóðum við upp á frábært úrval af kristölum og leiðsagnarspilum ásamt öðrum vörum tengdum andlegri iðkun, svo sem bækur, kertastjaka, skart, lífræna salvíu og fleira. Á samfélagsmiðlunum okkar (@orkusteinar á Instagram og Facebook) er að finna upplýsingar um fjölda kristala á íslensku og þar er hægt að sjá hluta af spilaúrvalinu okkar ásamt fleiru áhugaverðu. Við leggjum áherslu á að versla við heiðarlegar heildsölur þar sem vitað er um uppruna vörunnar. Það er okkur mikilvægt að vita að höfundar fái greitt fyrir sín verk þegar kemur að spilum og bókum og því erum við aðeins í viðskiptum við útgefendur eða heildsölur sem þeir mæla með. Sama á við um kristalana, við gerum okkar besta til að hafa upplýsingar um uppruna þeirra og að skipta við aðila sem hafa þá sýn að gott siðferði sé hluti af góðum viðskiptum og að í aðfangakeðjunni sé borin virðing fyrir fólki, landi og samfélögum. Okkar helsti heildsali hittir alla sína birgja ef mögulegt er og leggur ríka áherslu á sanngirni og siðferði í viðskiptum.

Umsjónaraðili