Fyrirlestrar
Kærleiksskref til heilunar
20.09.2026 12:00
Í fyrirlestrinum deili ég persónulegri vegferð minni í gegnum áskoranir, veikindi, sorg og sjálfsvinnu. Ekki fram sem sérfræðingur með öll svör, heldur sem manneskja sem hefur leitað leiða til að skilja, græða og vaxa. Ég fjalla um kærleika, ljós og fyrirgefningu — gagnvart okkur sjálfum og öðrum. Ég segi frá eigin reynslu, lífsáskorunum og þeim verkfærum sem hafa stutt mig á leiðinni, bæði faglega og persónulega. Um leið legg ég áherslu á að hver og einn þarf að finna það sem hentar sér best. Í lokin fjalla ég um hvernig hægt er að flétta saman vísindalega þekkingu og andlega nálgun, kynni kærleiksskrefin og opna fyrir samtal um hvernig við getum stutt okkur sjálf á eigin vegferð.

