Heimsljós
Til baka
Hulda Rafnsdóttir

Hulda Rafnsdóttir

Ég kem úr faglegum bakgrunni í heilbrigðisþjónustu, stjórnun og mannauðsmálum, en persónuleg reynsla mín hefur jafnframt leitt mig að dýpri áhuga á sjálfsheilun, innri styrk og hugaró. Ég er Akureyringur og hjúkrunarfræðingur að mennt, með víðtæka reynslu af heilbrigðisþjónustu, stjórnun og verkefnastjórnun. Í störfum mínum hef ég einkum einbeitt mér að mannauðsmálum, gæðum og öryggi, þar sem fagmennska, ábyrgð og umbótahugsun hafa verið leiðarljós. Ég er komin langt í námi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands og hef alla tíð lagt ríka áherslu á símenntun og persónulegan þroska. Þá hef ég sótt fjölbreytt námskeið, meðal annars um stefnumótun í eigin lífi og jákvæða sálfræði. Auk þess er ég lærður nuddari frá Boulder í Bandaríkjunum. Samhliða faglegri vegferð hef ég lengi haft áhuga á andlegum málefnum og vísindalegri nálgun og tel mikilvægt að flétta þessa tvo heima saman á uppbyggilegan og merkingarbæran hátt. Mínar lífsáskoranir hafa opnað hjá mér djúpa þörf fyrir að finna leiðir til sjálfsheilunar, innri styrks og hugaróar. Í þeirri vegferð hef ég kynnst ýmsum verkfærum, tólum og bjargráðum sem hafa stutt mig á ólíkum tímum. Ég kalla þetta mína verkfærakistu — safn leiða sem hjálpa mér að hlusta betur á sjálfa mig, styrkja innri ró og mæta lífinu af meiri meðvitund.

Viðburðir