Heimsljós
Til baka
Hver var María Magdalena ?
Fyrirlestrar

Hver var María Magdalena ?

20.09.2026 16:00

Þessi fyrirlestur býður upp á sjónarhorn sem ögrar hefðbundnum túlkunum feðraveldisins og staðsetur Maríu Magdalenu sem lykilpersónu í andlegu samfélagi Jesú Krists. Í fyrirlestrinum verður skoðuð koma Maríu Magdalenu til Frakklands og ferðir hennar í Frakklandi. Rýnt verður í hlutverk Maríu Magdalenu í frumskristninni sem: heilari,kennari, bersynduga konan, konan sem smurði Jesú, einsetukonan í Frakklandi, lykilpersóna í andlegu samfélagi Jesú Krists, postuli postulanna og hin helga brúður. Að lokum verður skoðað hvaða erindi María Magdalena á við okkur í dag á Vatnsberaöldinni.