
Meðferðir
Engla Reiki heilun
Engla Reiki heilunarstofa á Heimsljósi Upplifðu ljúfa og kröftuga orkuheilun!
Engla Reiki er mjúk og áhrifarík heilunaraðferð þar sem meðferðaraðilar tengjast heilunarenglum og öðrum ljósverum. Meðferðin vinnur djúpt en er á sama tíma afar létt og passar öllum. Á viðburðinum Heimsljós bjóðum við upp á stuttar kynningarmeðferðir. Rannsóknir og reynsla sýna að heilun getur meðal annars hjálpað þér að:
- Róa taugakerfið og draga úr streitu
- Létta á kvíða og andlegri þyngslum
- Lina verki í líkamanum
- Auka orku og draga úr þreytu Við hvetjum þig til að kíkja við hjá okkur, slaka á og þiggja nærandi stund. Meðferðaraðilar okkar brenna fyrir því að hjálpa öðrum að líða betur í gegnum milda englaorku. Langar þig að læra Engla Reiki?
Engla Reiki er frábær heilunaraðferð hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/nn/ð á þinni vegferð. Kíktu við á borð Starcodes Academy til að fá nánari upplýsingar um næstu námskeið.

