Heimsljós
Til baka
Vigdís Steinþórsdóttir

Vigdís Steinþórsdóttir

Vigdís er hjúkrunarfræðingur, heilari og dáleiðari. Sér um Kærleiksdaga ( heilsuhelgar haldnar nokkrum sinnum ári víða um land ) sem hafa verið haldnir síðan 1997. Heldur utanum Heimsljós sem hefur verið ár hvert frá árinu 2010 í Mosfellsbæ.

Viðburðir

Hópheilun
Samkomur

Hópheilun

Hópheilun er síðasta atriðið á Heimsljós hátíðinni og fer fram í matsal skólans. Við erum öll heilarar og munum njóta þess að heila hvert annað og taka á móti alheimsljósinu,  sitjarar sjá um verndina og söngur og tónlist eru í höndum Helmu Ýr Helgadóttur. Helma Ýr er hjúkrunarfræðingur og kennari að mennt og starfar í dag sem tónmenntakennari. Hún er með menntun í klassískri tónlist og hefur einnig lokið kennaranámi í MediYoga og Hatha jóga. Hún hefur leitt kórastarf í skóla, möntrukór og tekið þátt í tónlistarviðburðum og tónleikum. Þá hefur hún sótt fjölmörg námskeið og vinnustofur, bæði hérlendis og erlendis, tengd tónlist, söng og möntrum. Helma trúir á lækningarmátt raddarinnar og að tónlist og söngur geti veitt djúpa og hjartnæma heilun. Enginn aðgangseyrir.

21.09.2025 17:20 - 18:20