Einkatímar í tónheilun með Tíbetskálum
Tónheilun með Tíbetskálum sem hér er kynnt er heildræn einstaklings meðferð. Þátttakandinn er leiddur inn í djúpa og nærandi slökun, þar sem hann liggur í hvíldarstól á meðan spilað er á skálarnar og heilun gefin. Eftir tíma í tónheilun þá er algeng upplifun: * betra tilfinningalegt jafnvægi * hugur kyrrist og hugsanir skýrast * spenna í líkamanum dvínar * léttir á líkamlegum verkjum * innri tengsl og rödd hjartans vex * endurnærandi upplifun * losun um erfiðar tilfinningar * aukið innsæi og bætt núvitund