
Mama Reykjavík
Mama Reykjavík er hlýlegur vegan veitingastaður og samfélagsrými í hjarta Reykjavíkur. Við leggjum áherslu á nærandi, litríkan og bragðgóðan mat, útbúinn af ástríðu úr góðu hráefni. Hjá Mama snýst þetta ekki bara um matinn, heldur líka um að skapa fallegt rými þar sem fólk getur komið saman, notið og átt góða stund.
