
Guðrún Karla
Ég er Guðrún Karla - Hómópati - Meðferðardáleiðari - Miðill - Heilari - Tarot spásagnakona.
Mitt kall í þessu lífi er að hjálpa fólki að heilast og finna sína leið.
Ég hef alltaf verið djúpt tengd náttúrunni, andlegu hliðinni og kraftinum sem býr handans þess sýnilega.
Það er ekkert eins gefandi eins og að sjá ljósið kvikna hjá fólki aftur og finna svörin innra með sér og blómstra á ný.
Þetta er ekki bara starf - þetta er hjartans mál.
Ég hef lesið í spil til fjölda ára og miðlað sambandsmiðlun á opnum fundum og einka fundum.
Ég hef sótt fróðleik og leiðsögn innlendra sem erlendra aðila ásamt að fara á Arthur Findley setrið.
Ég hlakka til að vera með á Heimsljósahátíðinni og býð ykkur velkomin í Tarot lestur.

