Heimsljós
Til baka
Guðbjörg Thóroddsen

Guðbjörg Thóroddsen

Starfað við meðferðarvinnu í 30 ár.
Kennt sjálfstyrkingu við grunnskóla í 20 ár.

Stúdentspróf frá MR. 1976.
Kennsla, Hellissandi 1976-77
Leiklistarskóli Íslands, 1977-81. MA
Kennari frá KHÍ, 2003 ME
Diplóma meistarastigi í Jákvæðri Sálfræði.
Stjórn Félags um Jákvæða sálfræði
Setið í stjórn Rótarinnar, félags um málefni kvenna með áfengis og fíknivanda.
Áfallafræði TRM. Trauma Resource Institute.
Yóga Nidra kennari, Amrit Yoga Institute.
Externship in Emotionally focused Therapy.
Hugleiðsluleiðbeinandi.
Ráðgjafi
Höfundur og kennari Baujunnar, - heildrænni meðferð
hugar og líkama í tengslum
við áfallavinnu og sjálfsuppbyggingu.

Viðburðir

Leið að innri styrk
Fyrirlestrar

Leið að innri styrk

Fyrirlestur ásamt umræðum ef tími leyfir um aðferð þá sem ég hef kennt í sjálfstyrkingu í ca. 30 ár sem nefnist Baujan. Sjá www.baujan.isBaujan er sjálfstyrking sem byggir á meðvitaðri öndun í tengslum við tilfinningavinnu. Aðferðin gefur sérlega góða raun og er mikill kostur hennar hve hún er fljótvirk, auðveld og öflug. Kennd er leið til að komast heil frá áföllum og álagi og afhentir eru lyklar til sjálfsuppbyggingar. Aðferðin miðar að því að hafa stjórn á líðan sinni og geta sett sig í spor annarra. Þar sem hún tengist öndun eignast einstaklingurinn aðferðina innra með sér og getur leitað í hana í erfiðleikum og mótlæti síðar á lífsleiðinni. Bókl með aðferðinni kom út um síðustu jól og verður hún til sölu hjá mér. KR. 5.500

20.09.2025 14:00 - 14:45
Leið að innri styrk
Kynningar

Leið að innri styrk

Kynning á aðferð þá sem ég hef kennt í sjálfstyrkingu í ca. 30 ár sem nefnist Baujan. Baujan er sjálfstyrking sem byggir á meðvitaðri öndun í tengslum við tilfinningavinnu. Aðferðin gefur sérlega góða raun og er mikill kostur hennar hve hún er fljótvirk, auðveld og öflug. Kennd er leið til að komast heil frá áföllum og álagi og afhentir eru lyklar til sjálfsuppbyggingar. Aðferðin miðar að því að hafa stjórn á líðan sinni og geta sett sig í spor annarra.Þar sem hún tengist öndun eignast einstaklingurinn hana innra með sér og getur leitað í hana í erfiðleikum og mótlæti síðar á lífsleiðinni. Ný bók með aðferðinni kom út um síðustu jól og verður hún til sölu hjá mér. KR. 5.500 Hún er einnig komin út sem hljóðbók hjá Hljóðbókasafni 'islands.

20.09.2025 11:00 - 17:00