
Guðbjörg Ingibergsdóttir
Ég er Guðbjörg, miðill, heilari og les í sígauna- og tarotspil til leiðsagnar. Ég fékk fallega gjöf með mér inn í þetta líf og mér er ljúft að nýta hana til að hjálpa fólki að nálgast sinn eigin kjarna, finna svörin innra með sér og finna sína leið í gegnum lífið. Andleg málefni, sterkt innsæi og sýnir hafa fylgt mér frá unga aldri. Með árunum hef ég lært að treysta betur því sem mér er sýnt og sagt og tengja við kraftinn sem býr handan hins sýnilega. Ég hef lesið í spil og miðlað í fjölda ára, einkum í einkatímum, og hef jafnframt sótt fjölmörg námskeið og leiðsögn hjá bæði innlendum og erlendum aðilum. Mín sterkasta leiðsögn hefur þó alltaf falist í því að hlusta, skynja og fylgja því sem kemur til mín yfir huluna. Náttúran skipar einnig stóran sess í lífi mínu. Ég tengi sterkt við jörðina og það sem hún gefur okkur til næringar, vellíðunar og heilunar. Sú tenging hefur leitt mig enn dýpra inn á braut jurtanna og er ég nú í námi í grasalækningum. Ég hlakka til sjá og taka á móti ykkur á Heimsljósmessunni.
Hjartanlega velkomin Guðbjörg

