Ég er fædd í Danmörku, elskaði hafið og stundaði hestamennsku af ákefð sem barn og unglingur. Á ferðalagi til Íslands kynnist ég íslenskri náttúru og íslenska hestinum, þá 13 ára að aldri, og var algjörlega heilluð. Árið eftir þá ferð sneri ég aftur til Íslands, þá ekki lengur í fylgd með mömmu, heldur ein, en þó í hópi Dana. Þá var það Suðurlandið sem kallaði og viðkomustaðir í vikulangri ferð töldu m.a. Þingvelli, Geysi og Gullfoss. Eitthvað hélt að kalla á mig héðan, ég þurfti að koma til baka - vorið 1999 fór ég að heiman, út í heim og kom heim til mín á Ísland, á einum degi.
Allt er eins og á að vera.
Ég bý í Hveragerði, hef stundað nám við Háskóla Íslands í norrænni menningu og kennslufræðum, frumtamið hesta, kennt dönsku í Fjölbrautaskóla Suðurlands og eignast fjölskyldu.
Haustið 2019 kviknaði áhugi á orkuheiminum og ég hóf athyglisverðasta ferðalagi sem ég hef lagt í hingað til. Upphafið var grunnnámið í Access Consciousness, Access Bars. Síðan hef ég kynnst fleiri tegundum af orkuvinnu og allt vinnur þetta saman á undursamlegan hátt.
Ég hlakka til komandi tíma – ekki af því að ég reikna með að allt verði létt, það verða ávallt verkefni fyrir okkur að skoða og leysa, heldur af því að ég geng um í heiminum og börnin mín með mér og við ætlum að gera okkar besta hérna.
Hvernig verður það betra?

