Heimsljós
Til baka
Akashicheilun

Akashicheilun

​Akashic skrárnar eru lifandi, orkumikill gagnagrunnur sem geymir sögu, ferðalag og möguleika hverrar einustu sálar í gegnum tíma og rúm. Þetta er ekki bara sagnfræði; þetta er lifandi tækifæri til sjálfsuppgötvunar. ​Með því að tengjast skránum getur þú meðal margs annars fengið svör við því hvers vegna ákveðin mynstur, ótti eða hindranir endurtaka sig í lífi þínu. ​Kveikt á innsæinu og dýpkað tenginguna við þinn eigin innri áttavita og æðra sjálf. ​Einnig er hægt að heila þætti sem tengjast fyrri lífum, skilja og leysa upp gamla orkusamninga sem þjóna þér ekki lengur. Þetta er einungis lítið brot af því sem hægt er að skoða og vinna með. Kíktu við og spjöllum saman. Hlakka til að hitta þig.

Viðburðir

Akashic-heilun
Kynning (borð á gangi)

Akashic-heilun

Ég heiti Stella og starfa við Akashic-heilun og lestur Akashic skráa. Ég er fædd og uppalin á Íslandi en bý í Bergen í Noregi, þar sem ég starfa einnig sem sjúkraliði. Á minni vegferð hef ég lært að treysta innsæinu og þeirri djúpu visku sem Akashic skrárnar geyma. Í gegnum þær styð ég fólk við að öðlast meiri skýrleika, sjálfsskilning og innri styrk, svo það geti stigið með meira öryggi inn í eigið líf. Fyrir mér snýst þessi vinna um virðingu, kærleika og að skapa öruggt rými þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að tengjast sinni eigin visku og möguleikum. Á Heimsljósi gefst þér tækifæri til að fræðast um Akashic skrárnar, kynnast minni nálgun og upplifa hvernig þessi einstaka vinna getur orðið þér leiðarljós á þinni vegferð.

19.09.2026 11:00 - 17:00
20.09.2026 11:00 - 17:00