Heimsljós
Til baka
Orkusteinar

Orkusteinar

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4

Verslunin Orkusteinar er í eigu Starcodes Academy, en Alma og Hrabbý byggja á tveggja áratuga reynslu af að vinna með bæði kristala og leiðsagnarspil.
Alma hóf innflutning á kristölum og leiðsagnarspilum fyrir rúmum 15 árum með móður sinni í tengslum við kristala- og spilanámskeið. Við byggjum því á góðum grunni þegar kemur að því að aðstoða þig við að finna vörur sem henta þér eða þeim sem þeim sem þér þykir vænt um.Á samfélagsmiðlunum okkar (@orkusteinar á Instagram og Facebook) er að finna upplýsingar um fjölda kristala á íslensku og þar er hægt að sjá hluta af spilaúrvalinu okkar ásamt fleiru áhugaverðu.

Viðburðir

Orkusteinar
Kynningar

Orkusteinar

Hjá Orkusteinum bjóðum við upp á frábært úrval af kristölum og leiðsagnarspilum ásamt öðrum vörum tengdum andlegri iðkun, svo sem bækur, kertastjaka, skart, lífræna salvíu og fleira. Við leggjum áherslu á að versla við heiðarlegar heildsölur þar sem vitað er um uppruna vörunnar. Það er okkur mikilvægt að vita að höfundar fái greitt fyrir sín verk þegar kemur að spilum og bókum og því erum við aðeins í viðskiptum við útgefendur eða heildsölur sem þeir mæla með. Sama á við um kristalana, við gerum okkar besta til að hafa upplýsingar um uppruna þeirra og að skipta við aðila sem hafa þá sýn að gott siðferði sé hluti af góðum viðskiptum og að í aðfangakeðjunni sé borin virðing fyrir fólki, landi og samfélögum. Okkar helsti heildsali hittir alla sína birgja ef mögulegt er og leggur ríka áherslu á sanngirni og siðferði í viðskiptum.

20.09.2025 11:00 - 17:00
Starcodes Academy
Kynningar

Starcodes Academy

Starcodes Academy býður upp á lengri og styttri námskeið, fyrirlestra og andlegt samfélag á vefnum ásamt því að vera með verslunina Orkusteina sem selur kristala, leiðsagnarspil og fleiri andlega tengdar vörur.Á Heimsljósi kynnum við starfsemi skólans, meðal annars: - Hjartaakurinn, andlega samfélagið okkar á vefnum - Heilun ættarlína, magnað námskeið þar sem við könnum áhrif forfeðranna á líf okkar - Engla Reiki heilunarnámskeið - Þín persónulega umbreyting sem er níu mánaða ferðalag sjáfsskoðunar - Sálarfóður, mánaðarlega samveru - Inspired to Create, hlédrag (retreat) með áherslu á sköpun - Önnur áhugaverð námskeið en hægt er að sjá upplýsingar um önn námskeið skólans á vefnum okkar. Við verðum einnig með kristalla, leiðsagnarspil, bækur og fleiri vörur til sölu. Við hlökkum til að sjá þig!

20.09.2025 11:00 - 17:00