Heimsljós
Til baka
Magnús Sævar Magnússon

Magnús Sævar Magnússon

Ég er Magnús – og þetta er mitt ferðalagHvernig kemur það til að ég er á Heimsljósi?
Upp úr aldamótum, þegar ég var á þrítugsaldri, fann ég að tími var kominn til að vinna í sjálfum mér. Ég var orkumikill – fullur af lífskrafti – en átti ekki verkfærin til að beisla orkuna eða finna henni farveg sem studdi mig.

Það breyttist þegar ég sat hugleiðslunámskeið og tók þátt í bænahópi. Þar lærði ég að hlusta inn á við. Ég lærði að hugleiða – og fékk í hendur tól sem opnaði nýjan heim: innra jafnvægi, ró, og tengingu. Allt breyttist. Til hins betra. Síðan eru liðin um tuttugu ár. Á þeirri leið hef ég ekki verið einn. Æðri máttur hefur ferðast með mér – og ég með honum.

Undanfarin tæp tíu ár starfaði ég við útfararþjónustu. Þar lærði ég margt – ekki bara um dauðann, heldur lífið sjálft. Í því starfi skildi ég eitt af hlutverkum mínum í þessu lífi: að styðja aðra, hjálpa, næra. Að vera til staðar. Samhliða því skráði ég mig í guðfræðinám – nám sem ég stunda enn í dag, samhliða starfi kirkjuvarðar.

Fyrir stuttu fann ég svo að tími var kominn. Breyting var nauðsynleg. Ég sótti í verkfæri sem ég hafði lengi borið með mér. Tól sem hafði áður hjálpað mér. Ég brúkaði það – markvisst – til að losna úr ákveðnum viðjum. Til að rífa upp rót hegðunar og sá nýju fræi. Ég valdi frelsi. Með líkama. Huga. Og orku.

Í dag er ég laus. Ég finn frelsi. Og frið.Í þakklæti og gleði deildi ég þessari reynslu minni – og úr því varð það svo að mér var boðið að vera þátttakandi á Heimsljósi.

Ég hlakka til að deila minni sögu, og deila þeim verkfærum sem hafa hjálpað mér. Því þau eru ekki bara mín. Þau eru fyrir alla.

Viðburðir

Að losa sig úr viðjum vana og fíknar
Fyrirlestrar

Að losa sig úr viðjum vana og fíknar

Við höfum öll upplifað það að festast í mynstri – hegðun sem virkar í byrjun eins og huggun, lausn eða skjól, en verður síðar að fíkn eða slæmum vana. Hvort sem það eru fíknir, neikvæð hugsunarmynstur, samskiptahegðun eða annað – þá er það ekki við sem erum vandamálið. Það er mynstrið sem við lærðum einhvern tíman. Og það er hægt að aflæra það.Í fyrirlestrinum verður farið yfir hvernig hægt er að aflæra og gefa upp á bátinn úreld gildi. Eftir fyrirlesturinn verður hægt að fylgja mér yfir í vinnustofu þar sem tækifæri gefst til að framkvæma athöfnina. Í fyrirlestrinum er farið yfir: 1. Skilja hvernig við festumst í gömlum mynstrum Undirmeðvitundin er eins og tryggur hundur. Hún vinnur með það sem hún heldur að þú viljir – ekki endilega því sem þú segir. Ef hún hefur lært að ákveðin hegðun táknar öryggi, þá mun hún halda sig við það, þar til henni er sagt annað. Vanamynstur og fíkn eru ekki bara í hausnum. Þau sitja í líkamanum. Í taugakerfinu. Í vöðvaspennu. Í öndunarmynstri. Í orkulíkamann – í hjartanu, í kviðnum, í rótinni. Gamlar tilfinningar sem ekki fengu að flæða – og urðu að mynstri. Þetta eru orkurásir sem snúa í hring – aftur og aftur – þar til við bjóðum þeim meðvitund. Það sem áður var leið til að lifa af, þarf ekki að stjórna lengur. Lykillinn er að sjá mynstrið, virða það og velja að fara nýja leið. 2. Skilja hvernig undirmeðvitundin spilar stórt hlutverk Við höldum oft að meðvitaður vilji — viljastyrkur og ákvarðanir — ráði för. En í raun stýrir undirmeðundin um það bil 95% af öllu sem við gerum, hugsum og finnum. Hún er eins og öflugur tölvubanki sem keyrir forrit í bakgrunni — stöðugt, hljóðlaust, og án þess að við áttum okkur alltaf á því. Þegar við rekumst aftur og aftur á sama munstrið – sama vanann, sama fólkið, sömu sjálfseyðandi hegðunina – þá er það ekki vegna þess að við séum slök, lin eða viljalaus. Heldur vegna þess að undirmeðvitundin hefur lært að þetta er það sem heldur okkur á lífi. Við bjuggum til leið til að komast í gegnum eitthvað – og kerfið heldur sig við það. Þegar við förum að vinna með undirmeðvitundina sem samstarfsaðila – með hlýju, virðingu og mjúkri staðfestu – þá byrjar hún að treysta þeirri nýju leið sem við viljum fara. Og þá – breytist allt. Þá stöndum við ekki lengur í stríði við okkur sjálf. Heldur í friði með okkur. 3. Taka meðvitað skref út úr gamla forritinu Viðurkenna og sjá mynstur – Ekki dæma. Ekki berjast. Sjá. Tala við undirmeðvitundina – Nálgast hana sem bandamann, ekki óvin. Senda skýrt skilaboð: „Þetta er búið. Þessi kafli í lífi mínu er lokið. Ég vel annað núna.“ Staðfesta nýjan veruleika með tilfinningu og táknmynd 4. Táknræn greftrun og endurforritun Hér er farið yfir það hvernig hin táknræna og áþreifanlega athöfn er framkvæmd þar sem gamla mynstrið er kvatt.

20.09.2025 13:00 - 13:45
Að losa sig úr viðjum vana og fíknar
Vinnustofa

Að losa sig úr viðjum vana og fíknar

Greftrun, jarðarför vanans. Við höfum öll upplifað það að festast í mynstri – hegðun sem virkar í byrjun eins og huggun, lausn eða skjól, en verður síðar að fíkn eða slæmum vana. Hvort sem það eru fíknir, neikvæð hugsunarmynstur, samskiptahegðun eða annað – þá er það ekki við sem erum vandamálið. Það er mynstrið sem við lærðum einhvern tíman. Og það er hægt að aflæra það. Í vinnustofunni verður farið lauslega yfir það hvernig þú festist í gömlum mynstrum og eins hvernig undirmeðvitundin spilar stórt hlutverk. Ég mun leiða þig í ferðalag inn á við. Þú velur eitthvað mynstur og skilur við það. Þú vinnur með undirmeðvitundina og framkvæmir táknræna greftrun, þú jarðar vanann og endurforritar. Þú getur komið með nikótínið þitt ( veipið eða púðadósina ) eða skrifað á miða það sem þú vilt vinna með, svo eitthvað sé nefnt.

21.09.2025 15:00 - 15:45
Að losa sig úr viðjum vana og fíknar
Vinnustofa

Að losa sig úr viðjum vana og fíknar

Greftrun, jarðarför vanans. Við höfum öll upplifað það að festast í mynstri – hegðun sem virkar í byrjun eins og huggun, lausn eða skjól, en verður síðar að fíkn eða slæmum vana. Hvort sem það eru fíknir, neikvæð hugsunarmynstur, samskiptahegðun eða annað – þá er það ekki við sem erum vandamálið. Það er mynstrið sem við lærðum einhvern tíman. Og það er hægt að aflæra það. Í vinnustofunni verður farið lauslega yfir það hvernig þú festist í gömlum mynstrum og eins hvernig undirmeðvitundin spilar stórt hlutverk. Ég mun leiða þig í ferðalag inn á við. Þú velur eitthvað mynstur og skilur við það. Þú vinnur með undirmeðvitundina og framkvæmir táknræna greftrun, þú jarðar vanann og endurforritar. Þú getur komið með nikótínið þitt ( veipið eða púðadósina ) eða skrifað á miða það sem þú vilt vinna með, svo eitthvað sé nefnt.

20.09.2025 15:00 - 15:45