Heimsljós
Til baka
Henrik Andreas Aas

Henrik Andreas Aas

Ég hef helgað líf mitt andlegri iðkun og leitinni að dýpri merkingu lífsins. Í gegnum forna Jóga fræði og japa-hugleiðslu, hef ég fundið innri frið, skýrleika og tengingu við æðri tilgang.Með því að deila þessari fornu aðferð með öðrum vil ég skapa rými þar sem fólk getur dregið djúpt andann, fundið innra jafnvægi og vakið sína eilífu tilveru. Allir eru hjartanlega velkomnir til þátttöku - með opnu hjarta og opinni sál

Viðburðir

Hare Krishna
Kynningar

Hare Krishna

Allt sem er að finna á þessu borði – ilmkerti, skartgripir, bækur og bæklingar – er ætlað til að vekja og næra andlega meðvitund. Hlutirnir eru ekki einungis fallegir eða gagnlegir heldur bera þeir með sér dýpri merkingu: að minna okkur á samband okkar við Guð, Śrī Kṛṣṇa.Bækurnar og bæklingarnir byggja á visku hinna fornu Vedísku ritninga og kenningum Śrīla Prabhupāda, sem kenndi að sönn hamingja og friður fást aðeins þegar við áttum okkur á okkar andlegu náttúru. Ilmkertin og skartgripirnir eru hannaðir til að styðja við hugleiðslu, innri ró og bhakti-yoga – veginn að kærleiksríkri þjónustu við Guð. Vinsamlegast skoðaðu það sem vekur áhuga þinn – og ef spurningar vakna, þá er ég hér til að hjálpa með hógværð og gleði. Radha Radha

20.09.2025 11:00 - 17:00
Japa Hugleiðsla
Hugleiðslur

Japa Hugleiðsla

Velkomin í Japa-hugleiðsluÁ þessari helgu stund, komum við saman til að tengjast eilífu sjálfi okkar í gegnum andlegan hljóm maha-möntrunnar: Hare Krishna Hare Krishna Krishna Krishna Hare Hare Hare Rama Hare Rama Rama Rama Hare Hare Hvort sem þú ert byrjandi í mantra-hugleiðslu eða lengra komin(n), þá býður þessi stund upp á frið, íhugun og andlega næringu. Þú ert hjartanlega boðin(n) og velkomin(n) til að segja hana upphátt eða í huganum, hlusta, eða að einfaldlega hvíla hjarta þitt í hljómnum. Allir eru velkomnir. Hare Krishna maha-mantran er ekki einfaldlega hljóð — heldur bein tenging við Andlega heiminn. Á tímum truflana og kvíða hreinsa þessar heilögu hljómsveiflur spegil hjartans og vekja upp kærleiksþrá okkar til Guðs. Enginn sérstakur undirbúningur eða ytri hæfni eru nauðsynleg. - einungis einlægni. Með því að endurtaka þessi heilögu nöfn af einbeitingu og trú, yfirstígum við smám saman ótta, efasemdir og blekkingu, og uppgötvum okkar náttúrulega andlega eðli, Sat-chit-Ananda

21.09.2025 16:00 - 16:45

20.09.2025 15:00 - 15:45