Hvar
- Stofa 323
Allt er orka. Orka er eilíf, henni verður aldrei eytt – aðeins umbreytt. Þar sem við sjálf erum orka, höfum við kraftinn til umbreytingar. Gömul sár, áföll og mynstur birtast oft sem orkuflæði sem hefur stöðvast – og það sem hefur stífnað, má mýkja og umbreyta.Við berum öll okkar einstöku sögu – ólíkan uppruna, ólíkar lífsreynslur og sár – og því ólíkar þarfir. Vinnustofan mótast af orkunni sem er til staðar í hverju augnabliki og af því sem hver og einn kemur með. Það sem á sér stað verður leitt af hjartanu og andanum.
Ætlun mín er að opna rými þar sem orkuvinna getur birst á lifandi hátt – því erfitt er að lýsa því með orðum sem í raun þarf að skynja og finna.
Verið hjartanlega velkomin.
Velkomið er að gefa frjáls framlög ef vill takk fyrir.
Enska verður notuð á fundinum.