Hvar
- Stofa 301
Velkomin í Japa-hugleiðsluÁ þessari helgu stund, komum við saman til að tengjast eilífu sjálfi okkar í gegnum andlegan hljóm maha-möntrunnar:
Hare Krishna Hare Krishna
Krishna Krishna Hare Hare
Hare Rama Hare Rama
Rama Rama Hare Hare
Hvort sem þú ert byrjandi í mantra-hugleiðslu eða lengra komin(n), þá býður þessi stund upp á frið, íhugun og andlega næringu. Þú ert hjartanlega boðin(n) og velkomin(n) til að segja hana upphátt eða í huganum, hlusta, eða að einfaldlega hvíla hjarta þitt í hljómnum. Allir eru velkomnir.
Hare Krishna maha-mantran er ekki einfaldlega hljóð — heldur bein tenging við Andlega heiminn.
Á tímum truflana og kvíða hreinsa þessar heilögu hljómsveiflur spegil hjartans og vekja upp kærleiksþrá okkar til Guðs.
Enginn sérstakur undirbúningur eða ytri hæfni eru nauðsynleg. - einungis einlægni.
Með því að endurtaka þessi heilögu nöfn af einbeitingu og trú, yfirstígum við smám saman ótta, efasemdir og blekkingu, og uppgötvum okkar náttúrulega andlega eðli, Sat-chit-Ananda