Tómas Oddur Eiríksson er yoga & dans þerapisti og stofnandi Yoga Moves Iceland. Undanfarin 13 ár hefur hann leitt fjölmörg námskeið, vinnustofur, opna tíma, einkatíma og viðburði. Tómas hefur kennt í yoga-kennaranámum hjá Yoga Shala Reykjavík og hefur mikla ástríðu fyrir að miðla austrænni/yoga heimspeki til nemenda sinna. Þá heldur Tómas fyrirlestra og heildrænt hópefli fyrir fólk og fyrirtæki.