Upplýsingar
  • Nafn
    Svanborg Svanbergsdóttir
  • Sími
    820 3492
  • Netfang
    Svana59@gmail.com
Lýsing

Svanborg Svanbergsdóttir heiti ég alltaf kölluð Svana. Ég lærði Reikiheilun fyrir 20 árum hjá Birnu Vestman, Englareiki hjá Starcodes skólanum á Íslandi 2021 og hef lokið námi hjá þeim sem heitir Þín persónulega umbreyting. Gong og rödd og gongspilun lærði ég hjá Arnbjörgu Kristínu Konráðsdóttur í Ómur Yoga Gongsetur 2022. Starfaði mörg ár í stjórn Sálarrannsóknarfélagsins á Akureyri. Ég er með Engla- og Tónheilun Svönu.
Englareiki er sú meðferð sem ég býð upp á og er það heilun sem er unnin með englum, meisturum og drekum. Englareiki er dásamlega mjúk en kröftug heilunaraðferð sem við getum notað dags daglega fyrir okkur sjálf og aðra til betri heilsu.
Gong hugleiðsla er tónheilun. Það er kraftmikið lækningartæki fyrir taugakerfið, líkama og sál. Gongið hjálpar okkur að hreinsa undirmeðvitundina og losa um stanslausar hugsanir. Hljóðin sem gongið framkallar eru hljóð sköpunar, sem fara með þig djúpt inn í nærandi slökun. Gong slökun er mögnuð leið að “sleppa takinu” og falla frjálst í djúpa innri kyrrð. Í slökuninni lætur þú fara vel um þig og mögulega munu tónar gongsins opna nýja vídd innra með þér sem er dýpra innra með þér en hugurinn og mannleg heyrn geta náð.
Ég blanda þessum aðferðum saman í minni aðferð til að gefa góða og nærandi heilun.
Ég hef mikinn áhuga á að hjálpa þér og öðrum við að ná betri líðan og heilsu, að nýta það sem ég hef lært og hef áhuga á að bæta við mig fleiru.

Samfélagsmiðlar