Hrabbý og Alma eru stofnendur Starcodes Academy en skólinn varð til eftir að þær tóku á móti mögnuðum skilaboðum frá ljósverum sem leiddu þær til bata eftir alvarlega lífskulnun.Þær stöllur hafa fylgst að í yfir 35 ár og brallað ýmislegt á þeim tíma, meðal annars sótt fjölbreytt andleg námskeið í um20 ár.
Báðar höfðu þær gengið gegn sínu hjarta í langan tíma, þær þekkja því vel þá tilfinningu að hlusta frekar á það sem ytra er og um leið vilja meira eða annað í lífinu en ekki vita hvernig á að nálgast það.
Eftir magnað umbreytingarferli þar sem þær svöruðu kalli hjartans um að stökkva af hamstrahjólinu og umbreyta sínu lífi vinna þær nú með andlegu fólki á svipuðu ferðalagi.
Uppáhalds mantra Ölmu og Hrabbýar er að við verðum aldrei betri manneskjur, meðferðaraðilar og leiðsögukonur en vinnan sem við setjum í okkur sjálf! Þær þekkja vel að við erum aldrei búin í andlegri vinnu og því halda þær stöðugt áfram að þróa sig og þroska til að vaxa með skólanum.
Verslunin Orkusteinar er í eigu Starcodes skólans en þær stöllur hafa unnið með kristala og spil í um 20 ár.