Sólveig Dagmar Þórisdóttir er klínískur meðferðardáleiðari frá Dáleiðsluskóla Íslands og vinnur með Þáttameðferð og Endurlit. Hefur jafnframt mikla startsreynlu við að aðstoða dáleiðlsuþega til betra lífs og aldrei er hægt að staðfesta árangur því öll dáleiðsla er sjálfsdáleiðsla og því alfarið undur þér komið að vilja fara í dáleiðslustand í tímanum sem þú getur bókað. Mun Sólveig kynna dáleiðsluna og skrá einnig pöntun þína á Heimsljósarmessunni við kynningarborð sitt. Hér má sjá meðmæli og fjölda upplýsinga um störfin Sólveigar við meðferðardáleiðsluna: https://www.facebook.com/daleidslumedferdin/reviewsSólveig Dagmar hefur einnig verið starfandi listamaður að Korpúlfsstöðum í Reykjavík frá árinu 2007 eða í 13 ár. Á einnig langan starfsferil að baki sem myndlistarmaður, grafískur hönnuður og hagnýtur menningarmiðlari. Er jafnframt eigandi Create Iceland – Travel ehf. og starfar einnig við leiðsögn erlendra ferðamanna allt árið.
Myndlistarmaðurinn Sólveig Dagmar, tengir listsköpun sína við sköpunarkraft í ró og flæði í náttúrunni og málar oftast á staðnum á ferðalögum sínum: https://www.youtube.com/@solveigdagmar11111
Þannig miðlar hún myndlist sinni á áhrifaríkan hátt og sýnir sig jafnframt í vídeóverki við undirbúning málverka sinna. Sólveig Dagmar hefur ferðast víða um Ísland við liststörf sín og sýnt 23 listsýningar sem má finna á síðu: https://www.singulart.com/en/artist/s%C3%B3lveig-dagmar-%C3%BE%C3%B3risd%C3%B3ttir-34630?ref=ts
Nýtt listnámskeið Sólveigar verður kynnt og skráning fer fram á Heimsljósamessunni. Einnig verða nokkur vatnslitaverka Sólveigar til sýnis og sölu á staðnum. Sýnishorn af listaverkum sem kynna möguleika þína að ná valdi á að beina þér einnig á brautina að vilja læra að mála inni eða úti í Íslenskri náttúru og tengjast þannig djúpt þeim skilningi sem náttúran er innra með þér.
Sólveig Dagmar hefur einnig kennt hugmyndavinnu ferðaþjónustuaðilum, sem dæmi Strandamönnum og Vestfirðingum árið 2011 í grunnskólanum á Hólmavík. Þannig styður Sólveig við mennta-og menningartengda ferðaþjónustu með þekkingu fyrir alla þá sem þurfa. Sólveig bókar einnig slíka atburði fyrir bæjarfélögu. Mjög mikilvægt er listamanninum, að kenna einstaklingnum að skapa með list sinni, í ró úti í „Listasalnum Náttúrunni“. Málverkin eru þannig uppspretta af mikilli vinnu myndlistamannsins með það í huga að fá innsýn í hugarheim, þroska og dýpt, sem einstaklingurinn þroskar með sér úti. Sólveig Dagmar var gestalistamaður Hveragerðisbæjar í listhúsi þeirra „Varmahlíð“ í júnímánuðunum árin 2009 og 2021. Sólveig starfar að Keilugranda 2, 107 Reykjavík með meðferðir og listnámskeið. Síminn er 8630360 en velkomið eru að fá fría ráðgjöf og jafnvel bóka þar einnig.
https://www.facebook.com/artsolveigdagmar/