Árið 2001 hófst mín andlega vegferð með því að læra Reiki heilun, síðan þá hefur ansi margt á daga mína drifið, allskonar heilunar námskeið, nám í náttúrulegum leiðum til heilsubótar, mikil heilun á gömlum áföllum ofl.Árið 2015 stofnaði ég Hið Nýja Líf, þar sem ég bauð uppá slökunarstundir, slakandi meðferðir, fyrirlestra og námskeið, mikið af þeirri vinnu var unnin útfrá orkustöðvunum, á þessum tíma fóru Gyðjuspilin fallegu að gerjast í huga mínum, þau fengu síðan birtingarmynd sína haustið 2019 eftir mjög áhugavert ferli og mikla yfirlegu.
Að þessari vinnu kom góð vinkona mín Margrét I Lindquist, en af einstakri næmni kom hún hugmyndum mínum í myndrænt form, með 8 dásamlega fallegum gyðjum er príða spilastokkinn Hin Geislandi Gyðja.
Að þessu sinni verðum við tvær saman með spilin, Gyðjumyndir og fleiri myndir sem Margrét hefur verið að vinna að undanförnu.