Hvar
- Borð á gangi
REGNDROPATÆKNI
Regndropa tækni er öflug líkamsmeðferð sem gerð er á iljar og bakið.Kraftur og virkni kjarnaolía ásamt sérstökum strokum auka orkuflæði og skapa grundvöll fyrir heilbrigði hryggsúlunnar ásamt margvíslegum jákvæðum áhrifum á stoðkerfi og vöðva í bakinu. Regndropa-tækni var upphaflega þróuð til að hjálpa fólki með hryggskekkju, en meðferðin er ekki síður frábær stuðningur fyrir hin ýmsu líkamskerfi og ónæmiskerfið sem og að vera styðjandi fyrir úrvinnslu áfalla og tilfinningaheilun.
Sérstökum nuddaðferðum er beitt sem gera Regndropa-tæknina að einstakri heilunar- og slökunarmeðferð fyrir líkama og sál.
Á borðinu okkar færðu tækifæri til að prófa olíurnar sem notaðar eru í Regndropa - meðferðinn og aðrar olíur sem gott er að hafa við hendina til dæmis fyrir tilfinninga-úrvinnslu og heilun.