Hvar
- Stofa 357
Fyrirlestur ásamt umræðum ef tími leyfir um aðferð þá sem ég hef kennt í sjálfstyrkingu í ca. 30 ár sem nefnist Baujan. Sjá www.baujan.isBaujan er sjálfstyrking sem byggir á meðvitaðri öndun í tengslum við tilfinningavinnu.
Aðferðin gefur sérlega góða raun og er mikill kostur hennar hve hún er fljótvirk, auðveld og öflug.
Kennd er leið til að komast heil frá áföllum og álagi og afhentir eru lyklar til sjálfsuppbyggingar. Aðferðin miðar að því að hafa stjórn á líðan sinni og geta sett sig í spor annarra.
Þar sem hún tengist öndun eignast einstaklingurinn aðferðina innra með sér og getur leitað í hana í erfiðleikum og mótlæti síðar á lífsleiðinni.
Bókl með aðferðinni kom út um síðustu jól og verður hún til sölu hjá mér. KR. 5.500