Hvar
- Stofa 113
Hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands starfar fjölbreyttur hópur miðla og heilara.
Heilarar á vegum félagsins munu bjóða upp á heilun.
Sálarrannsóknarfélag Íslands var stofnað 19. desember 1918.
Tilgangur félagsins er að efla áhuga og virðingu almennings á andlegum málum, stuðla að mann- og hugrækt og standa að almennri fræðslu um andleg mál, með áherslu á kynningu á sálarrannsóknum nútímans
Til að vinna að þessum tilgangi hefur félagið aðstöðu og rekstur þar sem boðið er upp á miðlun, mann-, hug-, og sjálfsrækt, heilun, leiðbeiningu og fræðslu í formi funda, námskeiða, fyrirlestra og þjálfunar jafnt fyrir einstaklinga sem hópa. m. Til að auka virðingu og traust almennings á starfi félagsins mótar félagið og setur ákveðnar siða- og vinnureglur fyrir alla þá sem fyrir félagið starfa.