Upplýsingar
  • Nafn
    Guðrún Tinna Thorlacius
  • Sími
    894 3108
  • Netfang
    tinna@natturulega.is
  • Vefsiða
    https://www.natturulega.is/
Lýsing

Guðrún Tinna Thorlacius lauk B.Sc námi í hómópatíu við Purton House/The University of West London, í Bretlandi árið 2010.
Tinna er einig með BA í Fötlunarfræðum, IIN Heilsumarkþjálfi, með grunn- og framhaldsmenntun í markþjálfun og ACC alþjóðlega vottun markþjálfa. Tinna er einnig að ljúka BA námi í ítölsku vorið 2023.

Tinna starfar sem hómópati og markþjálfi á eigin stofu, auk þess sem hún kennir hómópatíu við Southern College of Homeopathy í Englandi. Tinna heldur einnig reglulega námskeið um talnaspeki og tarotlestur, auk þess sem hún heldur vinsæl sjóbaðsnámskeið og ýmsa viðburði því tengdu, Glaðari þú - leikjanámskeið, ásamt samstarfskonu sinni Margréti Leifs.

Tinna hefur einnig sinnt ýmsum félgaststöfum í þágu hómópatíu og markþjálfunar á Íslandi og sinnt frumkvöðlastörfum og vöruþróun undanfarin ár, þar sem samnefnari verkefnanna er iðulega sá að efla og styrkja viðfangsefnin til að vera upp á sitt besta og að kynnast leiðum til að upplifa meiri lífsfyllingu.

Tinna á og rekur fyrirtækin Dttr ehf, www.dottirbydottir.is og Steinholt & Co. á Seyðisfirði.