Upplýsingar
  • Nafn
    Guðbjörg Ingibergsdóttir
  • Sími
    690 0087
  • Netfang
    gudbjorg@netberg.is
Lýsing

Guðbjörg heiti ég og hef alltaf verið næm og vissi tiltölulega snemma að mér fylgdi eitthvað stærra og meira, ég skynjaðiog sá margt sem aðrir gerðu ekki endilega í kringum mig og upplifði mig stundum einmanna og öðru vísi en það breyttist þegar ég fór að vinna með þetta og öðlast skilning.

Ég hóf þó ekki að efla og þjálfa þessa meðfæddu gjöf fyrr en eftir tvítugt eða fyrir u.þ.b. 40 árum. Síðan þá hef ég verið í ýmsum þrónunarhringjum, farið á fjölmörg og fjölbreytt námskeið til að styrkja og skilja þessa gjöf, þ.a.m. reikni, englareiki, spáspil af ýmsum toga svo eitthvað sé nefnt.
Ég hef notað þessa gjöf til að gefa í kringum mig en aldrei starfað við þetta opinberlega né auglýst mig, fyrr en ég ákvað að ská mig á Heimsljósmessu.

Ég mun bjóða uppá heilun & spá-miðlun en þar sem í heilun berast stundum skilaboð þá getur þetta tvennt fléttast saman og ég miðla þá skilaboðunum áfram eftir því sem við á, ef fólk óskar eftir því.