Hvar
- Stofa 357
Við höfum öll upplifað það að festast í mynstri – hegðun sem virkar í byrjun eins og huggun, lausn eða skjól, en verður síðar að fíkn eða slæmum vana. Hvort sem það eru fíknir, neikvæð hugsunarmynstur, samskiptahegðun eða annað – þá er það ekki við sem erum vandamálið. Það er mynstrið sem við lærðum einhvern tíman. Og það er hægt að aflæra það.Í fyrirlestrinum verður farið yfir hvernig hægt er að aflæra og gefa upp á bátinn úreld gildi. Eftir fyrirlesturinn verður hægt að fylgja mér yfir í vinnustofu þar sem tækifæri gefst til að framkvæma athöfnina.
Í fyrirlestrinum er farið yfir:
1. Skilja hvernig við festumst í gömlum mynstrum
Undirmeðvitundin er eins og tryggur hundur. Hún vinnur með það sem hún heldur að þú viljir – ekki endilega því sem þú segir. Ef hún hefur lært að ákveðin hegðun táknar öryggi, þá mun hún halda sig við það, þar til henni er sagt annað. Vanamynstur og fíkn eru ekki bara í hausnum. Þau sitja í líkamanum. Í taugakerfinu. Í vöðvaspennu. Í öndunarmynstri. Í orkulíkamann – í hjartanu, í kviðnum, í rótinni. Gamlar tilfinningar sem ekki fengu að flæða – og urðu að mynstri. Þetta eru orkurásir sem snúa í hring – aftur og aftur – þar til við bjóðum þeim meðvitund.
Það sem áður var leið til að lifa af, þarf ekki að stjórna lengur. Lykillinn er að sjá mynstrið, virða það og velja að fara nýja leið.
2. Skilja hvernig undirmeðvitundin spilar stórt hlutverk
Við höldum oft að meðvitaður vilji — viljastyrkur og ákvarðanir — ráði för. En í raun stýrir undirmeðundin um það bil 95% af öllu sem við gerum, hugsum og finnum. Hún er eins og öflugur tölvubanki sem keyrir forrit í bakgrunni — stöðugt, hljóðlaust, og án þess að við áttum okkur alltaf á því.
Þegar við rekumst aftur og aftur á sama munstrið – sama vanann, sama fólkið, sömu sjálfseyðandi hegðunina – þá er það ekki vegna þess að við séum slök, lin eða viljalaus. Heldur vegna þess að undirmeðvitundin hefur lært að þetta er það sem heldur okkur á lífi. Við bjuggum til leið til að komast í gegnum eitthvað – og kerfið heldur sig við það.
Þegar við förum að vinna með undirmeðvitundina sem samstarfsaðila – með hlýju, virðingu og mjúkri staðfestu – þá byrjar hún að treysta þeirri nýju leið sem við viljum fara. Og þá – breytist allt. Þá stöndum við ekki lengur í stríði við okkur sjálf. Heldur í friði með okkur.
3. Taka meðvitað skref út úr gamla forritinu
Viðurkenna og sjá mynstur – Ekki dæma. Ekki berjast. Sjá.
Tala við undirmeðvitundina – Nálgast hana sem bandamann, ekki óvin.
Senda skýrt skilaboð: „Þetta er búið. Þessi kafli í lífi mínu er lokið. Ég vel annað núna.“
Staðfesta nýjan veruleika með tilfinningu og táknmynd
4. Táknræn greftrun og endurforritun
Hér er farið yfir það hvernig hin táknræna og áþreifanlega athöfn er framkvæmd þar sem gamla mynstrið er kvatt.